Ein pæling

Stundum velti ég því fyrir mér afhverju við dönsum ekki oftar?

Tvær pælingar

Afhverju er yfirmaðurinn minn er svona ótrulega óáhugaverður?

Hvernig get ég svarað honum með einhverju sniðugu sem hann mun ekki bara snúa út í það að tala um hvernig seinasta ferðin hans til Tene stóðst ekki væntingar?

Þrjár pælingar

Hvernig stendur á því að ég fæ alltaf súran bjór á sumum börum?

Þrífa þau aldrei leiðslurnar?

Myndu þau væntanlega ekki selja meiri bjór ef hann væri ekki súr?

Fjórar pælingar

Hver er gildileikinn á galvaniseruðu vatnsröri (st. 33)?

Hvaða formúlur er best að nota til að reikna það út?

Hvað er vörunúmerið á slíku röri hjá Sindra HF.?

Myndi slíkt rör vera nógu sterkt til þess að styðja við líkamsþyngd mína gefið að ég sé meðalhæð og í kjörþyngd?

Fimm pælingar

Á ég skilið ástina sem vinir mínir sýna mér?

Er ég ekki bara íþyngjandi afl í lífi þeirra?

Mun ég einhverntíman finna fyrir tengingu þar sem mér líður ekki eins og ég sé bara að leika það hlutverk sem ég held að hin manneskjan vilji sjá frá mér?

Munu hlutir breytast?

Eða verður allt alveg eins, alltaf?