nýlega þurfti ég að skrifa skilaboð þar sem ég bendi á að það vanti ákveðinn fítus í kerfi svo ég skrifaði featus en facebook undirstrikaði það rauðu svo ég googlaði featus en þá fékk ég að sjálfsögðu bara upp fetus sem er alls ekki það sem ég var að reynað tjá að vantaði í kerfið svo ég googlaði phetus en fékk sama svar sem fékk mig til að googla með gervigreindinni og spurði hana im looking for a word it sounds like fetus but is descriptive for systems en mér þótti það ásættanleg leið á tímanum til að orða það en fékk samt bara svarið The word you are looking for might be hiatus or status en það eru orð sem ég myndi aldrei nota til að miðla þessum upplýsingum frá mér svo þá fór ég að hugsa hvort fítus væri bara íslenskt orð því allir íslendingar nota jú þetta orð til að lýsa einhverju drasli í bílum þeirra og símum en sú hugmynd að þetta orð sem hljómar svo útlenskt sé innlenskt gladdi mig að sama máta og þegar ég kemst að því að útlendingar noti sömu orð og við nema í annari merkingu einsog til dæmis hollenska sem notar orðið strax til að lýsa því yfir að eitthvað þurfi að gerast seinna þótt svo að flestir útlendingar sem deila því einu að vera útlendingar bæði á íslandi og í hollandi myndu örugglega lesa það og leggja áherslu á áherslu exinns í orðinu sem bendir til þess að það sem þurfi að gera þurfi að gera núna en það var einmitt það sem mig vantaði að vita strax var jú hvort að orðið fítus væri í raun fítus í tungu þeirra sem beyta henni einsog ég beiti henni svo ég viti að við eigum þann sameiginlega fítus að vita hvað orðið strax felur í sér mikla ákefð þótt svo meðal þeirra sem beita henni með þeim breytingum á beitingum að þú beytir eftir rólegheitum sem er ekki það sem ég finn fyrir þegar ég finn að ég kann ekki að skrifa fítus á ensku. Í lettlandi þýðir kúka kaka og þegar ég fór í residensíu þangað dvaldi ég í nágreni við kaffihúsið mamma kúka en þetta er alveg öfugt við því sem ég var vanur því á svo mörgum öðrum útlenskum þýðir kaka einmitt kúka þar með talinni lettnesku.