Ég er heima í dag, veik. Þvottavélin er í gangi. Ég gerði mér grænan djús, og hann var merkilega góður. Engifer, epli, spínat. Svipaður þeim sem ég keypti á La Maison í gær.

Ég settist við borðið í eldhúsinu með bókina End Times Fascism fyrir framan mig og sá fyrir mér að byrja að lesa hana. Það er einhver mótþrói í mér að byrja, ég keypti líka bókina Muskism. Ég, í hroka mínum, tel mig hafa aflað sömu gagna og Naomi Klein og Astra Taylor, sem er pottþétt ekki satt, og finnst við líklega hafa komist að svipuðum eða áþekkum niðurstöðum, það er heldur ekki öruggt. En það er letjandi að vera ekki forvitin, og ekki nógu cocky heldur til að lesa bókina bara til að vera viss um að ég viti alveg jafn mikið og þær. Best að vera í óvissunni bara, eins og þegar ég fresta því að opna skilaboð, ef ég opna þau ekki, og les þau ekki, þá get ég ákveðið að það sem ég ímynda mér að gæti staðið þarna, sé sannleikurinn. Og lifað lífinu í þeim veruleika. Þannig líður mér með End Times Fascism, ef ég les hana ekki þá get ég bara búið í þeim veruleika að ég viti bara nkl það sama og þær. Sjáum hvað gerist. Bókin er keypt. Verkefnið hefur verið lagt fyrir.

Nú langaði mig að birta endurminningar úr hruninu, en það eru 18 ár síðan núna í október. Ég veit ekki um staðinn fyrir þessar endurminningar. Bara líður eins og það sé eitthvað sem ég ætti að gera. En ég er með ritstíflu. Og ég hef ekki neitt að segja.

Síðan ég fór og sá frekar slappa uppsetningu í Prater leikhúsinu á bókinni Perfection eftir Vincenzo Latronico hafa kvótin úr bókinni/leikritinu verið að poppa aftur upp.


"The collective upheaval of the twentieth century was over and the vestiges had been translated into the language of individualism—that is, of consumerism. Freedom had turned into abundance."

Hugsaði þetta í gær þegar ég hjólaði heim úr vinnunni, var búin að koma við í tveimur bókabúðum, keypti mér sítrónutertu (því ég vorkenndi mér því ég er veik), keypti mér eitthvað bókadót og penna í Modulor, allt þetta var í nýkeyptum bakboka, buxurnar nýjar, leðurjakkinn nýr. Ég er í Berlín að kaupa mér dót. Það er valdeflandi, það er gaman, það er frelsi. Og ég birti þessa hugleiðingu mína í close friends og starði svona aðeins á textann og hugsaði um meginlandslífstílinn, að geta keypt sér eitthvað ódýrt og slakað á (amk ef maður er með íslenskan pening) setið úti í sólinni, í grasinu, í október, án þess að vera kalt. Hjólað og það er ekki slagviðri. Hátt til lofts, kúltúr, whatever, bakarí, tré. Eitthvað sem við söknum þegar við erum á íslandi, og ég hef verið fyrst og fremst bara að kaupa mér eitthvað. Og ég hugsaði, ég vona að close friends vinir mínir fatti að mér finnst það í alvöru glatað, þetta er ekki bara svona cynical djók. Mér finnst þetta glatað ástand.