Ég var að klára að lesa Year of magical thinking eftir Joan Didion. Erfitt ár hjá henni. Í framhaldinu er ég búin að panta My year of rest and relaxation eftir Ottessa Moshfegh. Ár af. Árið 2020 bjó ég ein á hótelherbergi 213 á Laugarvegi 22A. Það var heimsfaraldur, ferðatakmarkanir og hótelið ekki í vanalegum rekstri. Þetta ár gat fólk leigt herbergi til lengri tíma fyrir lítið. Á herbergi 214 bjuggu þrír strákar, aðeins yngri en ég og deildu einu hjónarúmi. Þeir reyktu gras inni á herbergi á daginn og höfðu sokk í loftræstingunni. Stundum keypti ég franskar handa þeim. Í herberginu fyrir ofan bjó kona sem tók á móti gestum. Oft á kvöldin. Á hæðinni fyrir neðan bjó fólk sem beið eftir félagsíbúðum. Villi Netó bjó þarna líka og hafði stöðu næturvarðar. Við vorum eins og Fólkið í blokkinni. Suma daga var ég í studio á Granda og aðra starfsmaður á frístundaheimili í Laugardal (Glaðheimum) og nokkur kvöld í félagsmiðstöð á Seltjarnarnesi. Þegar ég kom heim úr vinnunni var búið að brjóta kannt á klósettpappírinn minn og það voru hrein handklæði á rúminu sem var búið að búa um. Konan í lobbýinu drakk á kvöldin og horfði á Downton Abbey í tölvunni, ég sótti póstinn minn til hennar á morgnana og ný password fyrir wifi ið í hverri viku þetta ár. Ár af einhverju.
Ár af
213
10 læk
Athugasemdir (0)
Engar athugasemdir enn. Vertu fyrstur!
