Skrifstofan hans afa var lengst af í húsi við Laugarveg 22A bakvið glugga með sandblásnu gleri og stubbahús. Á móti hurðinni var skrifborð sem var klætt með svörtu leðri og skrifborðstóll, líka úr svörtu leðri. Við hurðina var svartur tveggja sæta leðursófi frá Lecorbuiser. Sófaborðið var glerborð með þykkum rúnuðum málmfótum. Á borðinu var taflborð úr gleri og þykkur öskubakki, líka úr gleri. Á veggnum hægra megin við sófann var svartur spónklæddur skápur með skúffum og gler hillum bakvið glerhurðir. Þar voru glerglös með haldi fyrir irish coffee, kristalsglös fyrir viský, glös á fæti fyrir vín og löng glös fyrir freyðivín. Gler flöskur og viðar kassi fyrir vindla. Í skápnum var líka sett af Babushkum úr tré sem á voru málaðir þjóðarleiðtogar Rússlands sem var hægt að setja inn hvorn í næsta. Bakvið skrifborðið fyrir ofan skrifborðsstólinn var svo svarthvít mynd í ramma af Al Pacino. Við hliðina á skrifborðinu hans afa var upprétt teikniborð sem hallaði yfirleitt í 90 gráður. Þar teiknaði hann byggingar á þar tilgerðan smjörpappír með blýant og reglustiku úr málmi. Undir leður skrifborðinu var svo ruslatunna úr stáli með krumpuðum pappír í og við hliðina á henni var yfirleitt 2 lítra coke flaska með flötu coke i í fyrir bland. Ofan á skrifborðinu var lampi á gylltum fæti með grænum skermi úr gleri, við hliðina á honum var langur og mjór blómavasi úr áli og í honum stök rós. Afi skifti henni út einu sinni í viku.

Afi dó í sumar. Ég skrifaði ekki minningargrein. Ég las hana í Morgunblaðinu á Hamborgarabúllu Tómasar í Hafnarfirði í sólmyrkvanum. Ég átti erindi litlu síðar inn á skrifstofu sem áður var skrifstofan hans afa. Bókarinn, kona með Ipad, sat þar í nýjum stól við þunnt viðarborð og lampa frá Hey fyrir neðan myndina af Al Pacino. Veggina var búið að mála ljósbrúna eins og BB krem og þar sem áfengisskápurin hafði verið var flatskjár með senum úr íslenskri náttúru. Það var ný motta á gólfinu, drapplituð, loðin og á nýju hliðarborði var kerti og flaska með ilmpinnum.