Ég bý í Amsterdam Noord. Það er eins og að búa í Mosfellsbæ nema Metroinn niður í bæ tekur 4 mínútur. Íbúðin er lítil eins og umslag. Önnur hliðin bara gluggar. Ég horfi mikið út um gluggann, á nýsprottna grasið sem er eins og í renderinu í bæklingnum sem fylgdi íbúðinni. Ég er búin að fylgjast með þessum grasbletti raungerast síðan í febrúar 2025. Þá var byggingin umkringd sandi. Hér er allt byggt á sandi. Það er sprunga í stofunni því einn útveggurinn er að sökkva ofan í sandinn. Undir grasinu út um gluggann er bílastæðakjallari, steyptur. Ofan á steypunni er hvítur plastdúkur og ofan á hvíta plastdúknum er svört plast grind og á henni er sandur og á sandinum er mold og í hana hefur verið sáð fræjum og nú er ný sprottið upp gras. Það hefur margt fólk komið að þessum grasbletti. Hvíthært fólk með gleraugu í skyrtum með dróna. Fólk með hjálma í appelsínugulum vestum. Kallar í hvítum hlýrabolum með sígarettur og siggputta og verkvit. Þetta fólk er að vinna við raunveruleikann. Ég er að vinna í tölvunni. Ég fylgist með þessu fólki af þriðju hæð eins og þau séu playmo kallar.

Complexið heitir Urban villas. Ég bý í Parkvilla 4. Þar til Metro línan dreif til Amsterdam Noord árið 2011 var þetta sveit. Í raunveruleikanum héti þetta Rural apartments. -Var að tala við tvítugan bróðir minn í símann. Hann er kominn með permanent og byrjaður að selja miða í Lottó.