Þrátt fyrir að bókunin sjálf sé í sjálfu sér ekki löng, í raun bara þrjár setningar, nær hún engu að síður að láta mann tapa þræðinum og athyglinni innan nokkurra orða.
Kynningin er bróðurhluti textans og bendir á hvernig EES-samningurinn sem heild leitast við að ná fram sameinuðu Evrópsku efnahagssvæði án þess að neinn aðili samningsins þurfi að framselja vald til neinnar evrópskrar stofnunar.
Erfitt getur reynst að þrauka í gegnum þennan fyrsta hluta, mikið púður lagt í að rifja upp tilgang EES-samningsins og lesandinn er engu nær um hvað bókunin snýst.
Því næst byggist upp mikil spenna. Hvað skal gera ef árekstur verður milli EES reglna og laga lands sem aðili er að samningnum? Þessi hluti er langbesti hluti bókunarinnar að mati gagnrýnanda og lætur lesandann bæði iða í skinninu og virkilega láta hugann reika, hvað gerist ef tvennt getur verið hið rétta? Hvernig getur sitthvor móralska útfærslan orðið að lögum - er siðferði afstætt ef tvenn lög um sama hlutinn geta verið sönn á sama tíma?
Og úrlausn bókunarinnar virðist einföld í fyrstu: Að ef nauðsynlegt sé, ætti EES-land að setja lög sem tryggja að EES-reglur trompi lög landsins ef ágreiningur kemur upp.
En um þetta leyti hrynur hakan í gólfið. Algjör kúvending á því sem er í byrjun sagt vera tilgangur EES-samningsins. Bókunin spýtir manni út með þennan nýja sannleika í farteskinu án þess að útskýra að neinu leyti hvernig hann samrýmist tilgangi EES-samningsins og virðist í raun í þversögn við hann. Endirinn er opinn og knýr lesandann til túlkunar.
Ritstíllinn er beinstífur og blýskeyttur en bersýnilegt er að höfundur hefur gott vald á lagatæknilegu orðfæri af Brüssel-bjúrókrataskólanum.
Bókunin bliknar þó í samanburði við margar aðrar viðbætur við EES-samninginn, t.a.m. bókun 7 um sérþarfir Íslands í sambandi við ýmislega bursta og kústa og bókun 8, eða einokunarklásúluna, sem staðfestir m.a. einokun Íslands á áburði og Liecthenstein á byssupúðri.