Í gær fékk Miðillinn til sín í pósti bréf frá aðila innan veggja skjalasafnsins. Í þessu bréfi eru upplýsingar um stórmerkilegan fund í skjalageymslu 9B á 7undu kjallarahæð safnsins Í Reykjavík. Aðilinn vill halda nafnleynd svo við köllum hann héðan í frá „Gamli“.

Gamli segir í bréfi sínu: „Á miðvikudaginn síðasta, eftir að ég hafði klárað rútínu skjalapússun Jógvanssögu var ég á leið niður í geymslu til að ganga frá. Ég hlýt að hafa verið eitthvað annars hugar eftir erfiða pússun því ég fór óvart inn í vitlausa geymslu. Þegar ég var kominn inn í myrkvaða geymsluna og búinn að læsa, (algjört möst samkvæmt reglum Ríkharðs Gummsteins skjalastjóra), þá kveikti ég loks ljósin. Við mér tók óvænt sjón, herbergið sem ég var í var risastórt og þegar ég var loksins búinn að venjast þeirri litlu birtu sem trítlaði úr ljósbláu ljósaperunum sem hengu úr loftinu sá ég 30 geimverur, hver og ein liggjandi á borði með eina litla ljósaperu hangandi yfir sér, enga sæng og engan kodda, ekki neitt bara. Þær voru gráar með stór augu.“

Gamli heldur áfram: „Eftir að hafa staðið gaddfreðinn í eina mínútu ákvað ég að læðupúkast aðeins nær, ég hef alltaf verið mjög góður í að læðupúkast. Ég læðupúkaðist nær og ætlaði að virða eina geimveruna fyrir mér en þá heyrði ég hávært þrusk fyrir utan hurðina. „GAMLI ÉG VEIT ÞÚ ERT ÞARNA INNI“ hrópaði rödd handan hurðarinnar. Ég fraus, hvernig vissi þau af mér hérna inni ?. Ég heyrði eitthvað sem hljómaði eins og lyklakippa, ónei hann er að koma inn. Ég varð að vera fljótur að hugsa. Ég leit í kringum mig, eitt borðið var autt, ég hljóp að borðinu og hlammaði mér á það, lagðist svo niður eins flatur og ég gat verið. Hurðin opnaðist og ég fann lyktina af strawberry-gingseng vapeinu hans Ríkharðs, hann sjálfur hafði komið niður til að finna mig. Ég þorði ekki að hreyfa mig, ég fann hvernig andrúmsloftið í herberginu varð þéttara útaf magnþrunginni nærveru Ríkharðs. Hann stóð enn í hurðagættinni eins og hann væri að skima allt herbergið. Ég hafði alltaf verið mjög góður að skima líka. Eftir nokkra stund, heyrði ég hátt “hrmpfh” og hurðina lokast. Hann var farinn. Ég beið í nokkrar mínútur og fór út, skilaði Jógvansskjölunum á sinn stað og fór heim að borða.“

Á leiðinni út út geymslunni tók ég eftir lítilli merkingu við fætur einnar geimverurnar, á henni stóð „Gunnar á Hlíðarenda, Fæddur ?- Látinn 1090.“

Miðillinn hefur reynt að ná sambandi við Þjóðskjalasafn Íslands en það er bara opið 10:00-14:00 og undirritaður er ekki í vinnunni þá.