Mikill fjöldi var samankominn á útgáfutónleikum rapparans í Laugardalshöll. Eftirvæntingin fyrir tónleikunum snérist fljótlega upp í andhverfu sína. Þegar auglýst dagskrá átti að hefjast tjáðu aðstandendur tónleikana gestum að tónleikarnir gætu ekki hafist fyrr en atkvæði í borgarstjórnarkosningunum sem fram fóru samdægur væru talin.

Salurinn var því næst innsiglaður og lauk talningu ekki fyrr en að ganga hálf fjögur um nóttina. Tónlistarmaðurinn steig þá á svið og tilkynnti lokatölur og hóf tónleikana.

Gott gengi Sjálfstæðismanna gerði þó biðina bærilegri fyrir marga í salnum.