„Við erum alveg í skýjunum, eftir rúm 20 ár er biðin loks á enda!“ segir Gunni Birgis, einn háværasti Arsenal stuðningsmaður landsins en miðillinn tók púlsin á Gunna eftir að flautað var til leiksloka í einvígi Bournemouth og Manchester City.

„Við Arsenal menn erum hvað þekktastir fyrir að pissa í buxurnar og skæla svo það er alveg geggjað að fá eitt stórt win. Núna erum við ekki bara pissudúkkur og bleyjubörn, heldur pissudúkkur og bleyjubörn með silfraðan kopp, jibbí“
„ég viðurkenni að það er búið að vera erfitt að halda með Arsenal í gegnum árin þar sem stuðningsmenn eru flestir fólk sem annaðhvort klórar sér í rassinum og þefar við matarborðið eða kroppar í bólur á almannafæri. Við erum aumingjar og ónytjungar hver flest, sem éta úr nefinu fyrir framan aðra en jú þetta er geggjuð tilfinning“.
Blaðamaður spyr Gunna hvort hann búist við að stuðningsmenn hópi sig saman einhverstaðar og fagni titlinum.
„Jú alveg án efa, þetta er nú of stórt móment til að sleppa því. Það verður þó örugglega eitthvað stutt þar sem mömmur okkar vilja helst fá okkur í bólið fyrir klukkan 9 en ég efast ekki um að það verði enhverjir sem neiti að fara heim. Menn munu án efa leggjast í gólfið og fá frekjukast til að gera mömmu erfitt fyrir“ segir Gunni og hlær. „Jafnvel að einhverjir kúki í sig, hver veit“.
Miðillinn óskar Arsenalmönnum til hamingju með titillinn.