Miklar getgátur hafa verið uppi um hvað Áslaug Arna ætlar að taka sér fyrir hendur eftir að hún lét af þingmennsku í gær. Aðstandendum Miðilsins er heiður að tilkynna að hún hefur nú verið ráðin ritstjóri allrar útgáfu Miðilsins. Hún hefur störf nú þegar og upplýsti á miðilsfundi með starfsmönnum nú fyrripartinn hverjar nýjar áherslur útgáfunnar verða. Þar kennir ýmissa grasa en til stendur að blása til mikillar sóknar í miðlun stafræns efnis. Fundurinn var mjög tilfinningaþrunginn og voru bæði fréttastjóri og yfirmaður auglýsingadeildar Miðilsins klökkir bæði við upphaf og lok fundarins.

Fram kom að til stæði að settir verði á laggirnar tveir nýjir hlaðvarpsþættir undir merkjum Miðilsins, þættirnir Miðmál og Moðmál.

Þar verður farið yfir vettvang dagsins, pólítikin verður tekin fyrir og áhugavert fólk fengið í viðtal.

Þá verður nýr fréttavefur settur í loftið miðbl.is þar sem hægt verður að lesa nýjustu fréttir ásamt metnaðarfullri íþrótta- og menningarumfjöllun.

Þar fær tískuáhugafólk líka sitthvað fyrir sinn snúð en hin geysivinsæla Magnea Iðunnardóttir mun sjá um tískuvefinn Miðland.

Þó áherslan verði mest á stafrænt efni stendur enn til að Morgunmiðillinn berist í hús áskrifenda alla virka daga. Þar mun Áslaug vænantlega láta til sín taka í leiðara blaðsins Miðsteinum.

Ótengt útgáfumálum stendur einnig til að setja á stofn einkarekinn leikskóla fyrir börn starfsfólk fyrirtækisins auk daggæslu fyrir yngri börn og fæðingardeildar fyrir starfsmenn.

Forsvarsmenn útgáfu félags Miðilsins, Miðvakurs, segja ráðningu Áslaugar vera mikið heillaskref fyrir framtíð fjölmiðilsins og eru spenntir fyrir komandi samstarfi.