Síðastliðinn fimmtudag voru átta listamenn dæmdir til grýtingar á Austurvelli vegna ófullnægjandi brunavarna í vinnurýmum þeirra. Þetta er fyrsta mál sinnar tegundar hérlendis en nýverið tóku ný lög gildi sem heimila þessa tegund refsingar.
Lögin byggja lauslega á svokölluðum Sharia-lögum sem víða tíðkast í harðstjórnarríkjum í Asíu. Íslensku lögin eru þó ólík að því leyti að í stað þess að sækja lögmæti sitt trúarrit er grunnrit laganna handbók Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu.
Listamennirnir voru dæmdir til hámarksrefsingar og eiga ekki kost á að áfrýja dómnum. Að sögn slökkviliðsins stendur deildin nú í ströngu við undirbúning samkomunnar en búist er við fjölda manns á Austurvöll til að verða vitni að þessum sögulega viðburði.
Samkvæmt upplýsingum fréttastofu Miðlsins liggur fyrir að Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar í borginni muni kasta fyrsta steininum en Hildur Björnsdóttir mun lesa ritningarorð úr lögum nr. 75/2000 um brunavarnir.