,,Ástandið er búið að vera með öllu gjörsamlega óboðlegt. Þegar ég tók að mér þetta starf vissi ég að mörgu þyrfti að breyta en ég gat ekki ímyndað mér að ástandið væri eins slæmt og það í rauninni er,“ segir Áslaug Arna, ritstjóri Miðilsins. ,,Ég var við það að játa mig sigraða og segja upp störfum. Svo datt mér í hug að hringja í vin minn frá New York sem ég kynntist er ég nam við Columbia-háskólann þar.“

Maðurinn sem Áslaug á við heitir Eric Koza og starfar fyrir AlixPartners Management Consultants í New York en það er fyrirtæki sem sérhæfir sig í og tekur að sér hagræðingu í rekstri fyrir fyrirtæki í veseni. ,,Þetta er mjög dýrt spaug en ég myndi ekki grípa til þessara aðgerða ef ég kæmist hjá því, en því miður er staðan bara sú að það getur enginn unnið á þessum vinnustað eins og er.“

Eric Koza hjá AlixPartners
Eric Koza hjá AlixPartners

Áslaug beinir erjum sínum að þeim Kristjáni Thorlacius, fyrrverandi rit- og rekstrarstjóra Miðilsins, og Böbu Vöngu, núverandi yfirmiðli Miðilsins, í færslu á Facebook-síðu sinni sem hún birti nú í morgun. ,,Það er hreinlega óskiljanlegt að einhver geti verið svona vitlaus þegar kemur að því að semja. Baba Vanga er jú eitt stærsta nafnið í heimi miðla og að sjálfsögðu er spennandi að ráða hana inn, en samningurinn sem hann (Kristján Thorlacius) gerði við hana er alveg út í hött.“ Áslaug vill meina að Böbu hafi verið veitt allt of mikil völd en hún fékk sjálf að skrifa samninginn sinn. Seinna kom það í ljós að hún hafði komið fyrir sömu klásu og Palpatine nýtti sér til þess að sölsa undir sig þingið í Star Wars Episode 2: Attack of the Clones.

Kristján Thorlacius Finnsson fyrrverandi ritstjóri Miðilsins og Sheev Palpatine, fyrrverandi keisari vonda heimsveldisins
Kristján Thorlacius Finnsson fyrrverandi ritstjóri Miðilsins og Sheev Palpatine, fyrrverandi keisari vonda heimsveldisins

Áslaug sakar Böbu um að hafa eitrað vinnustaðinn af leti og lélegum vinnubrögðum. „Þegar ég tók að mér störf ritstjóra miðilsins.com nú í vor lék allt í lyndi. Starfsfólk miðilsins mætti glatt til vinnu á morgnana og fór fullnægt heim að kvöldi. Allir unnu sína vinnu af miklum metnaði og hlutu lof fyrir vel unnin störf, allir nema einn… Baba Lata, eins og ég fór snemma að uppnefna hana, mætti aldrei á réttum tíma, þá er hún mætti yfir höfuð. Hún var án frávika timbruð og oftar en ekki drakk hún í vinnunni. Gerði í raun ekkert annað en að horfa á HM í fótbolta og drekka bjór. Þegar ég reyndi fyrst að reka hana án árangurs snöggreiddist hún og fór að kyrja einhvern óþvera á búlgörsku. Seinna áttaði ég mig á því að hún hafi verið að leggja bölvun á vinnustaðinn. Allir starfsmennirnir okkar voru orðnir letihaugar sem komu engu í verk og lítið sem ekkert var birt á síðu okkar.“

Baba Vanga er upprunalega frá Búlgaríu!
Baba Vanga er upprunalega frá Búlgaríu!

„Það er því með sól í hjarta og brosi á vör sem ég get sagt ykkur að plágan blinda starfar ekki lengur hjá Miðlinum. Dyggir lesendur Miðilsins mega því búast við nýjum og ferskum umfjöllunum á næstu misserum. Einnig langar mig að tilkynna það að næsta árshátíð Miðilsins verður haldin í Sofíu, Búlgaríu, en í þeirri ferð ætla ég mér að leita uppi gröf Böbu og míga á hana.“

Við hjá Miðlinum óskum starfsfólki Miðilsins til hamingju með þessar stórkostlegu fréttir.