Jæja hvað segiði elskurnar mínar Baba Vanga hér með ykkur aftur á þessum yndislega laugardagsmorgni. Þessi vika var nú meira ruglið, frídagur á mánudaginn en samt í nógu að amstra. Stutt en feit einsog þau segja. Spáin þessa helgina er á svipuðum nótum.
Útskriftir hjá sumum og innritanir hjá öðrum.
Barnlaus frændi verður furðulega stoltur af nýútskrifaðri frænku og gerir hlutina óþæginlega fyrir alla.
Gugga í gúmmíbát fer á alvöru gamaldags binge djamm með vísi og endar í ógeðslegu eftirpartýi í norðurmýrrinni. Næsta dag fer Gugga á rúntinum með manni sem hættir ekki að tala um að hann hafi verið Trommarinn í Egó en hann tekur hana á allar helstu rónaknæpur höfuðborgarinnar. Geggjað kontent í boði Ölgerðar Egils Skallagrímssonar. Engar áhyggjur hún Guðrún kemst heil á húfi heim, Guðrún er barnabarn Ástu Sigurðar og Þorsteins frá Hamri svo það þarf nú ekki að kenna henni að djamma.
Fullorðnir menn fara að gráta á sportbörum borgarinnar, sumir úr frekju og aðrir úr hlátri.
Ég spái Bubba aftur góðri veiði
Það sem er ritað mun verða, það sem er falið mun koma í ljós.