Dregið hefur verið náriðla Íslands og annarra þjóða á HM í ár. Íslendingar lenda í náriðli með Bretum, Ekvadormönnum og Japönum.

Keppnin fer fram samhliða heimsmeistaramótinu í Knattspyrnu sem hófst núna í vikunni. Mikil spenna hefur verið fyrir keppninni þetta árið þar sem sigurvegara síðustu og þar síðustu riðlakeppni munu að öllum líkindum etja kappi.

Náriðill Íslands á HM í ár verður Benóný Guðnason, arkitekt. Benóný er fyrsti íslendingurinn til að taka þátt í keppninni en þrátt fyrir að iðjan hafi lengi verið stunduð á Íslandi voru keppnissamtök sem gjaldgeng eru á alþjóðvísu ekki stofnuð hérlendis fyrr en 2025.

Benóný sem hefur lengi verið virkur í neðanjarðarsenunni á Norðurlöndunum er í 145. sæti heimslistans en líklegt er að allur sá listi riðlist þegar líður á mótið.