Samþykktar hafa verið teikningar af nýjum og glæsilegum bílastæðakjallara sem grafinn verður undir Hólavallakirkjugarði í vesturbæ Reykjavíkur. Framkvæmdir hefjast strax í byrjun júlí. Kjallarinn mun vera á sex hæðum og rúma um það bil sex hundruð bíla, eða „einn bíl per gröf“ segir Hildur Björnsdóttir borgarstjóri með bros á vör. Á fyrstu hæð verða stæðin breiðari en venjuleg stæði enda einungis leyfilegt að leggja Range- og Land Roverum þar.

Lengi hefur verið skortur á bílastæðum í þessum hluta vesturbæjarins og þess vegna er þetta eitt fyrsta mál á dagskrá hjá nýkjörinni borgarstjórn.

„Þetta er það sem þau hefðu viljað,“ segir Hildur þegar hún er spurð hvort þetta sé ekki óvirðing gagnvart hinum steindauðu sem liggja þarna sex fetum undir mosanum.