Íbúar í Helsinki vöknuðu við þær skelfilegu fréttir að skuggalegur dróni væri á sveimi. Viðvörunarstigið rauk upp og allt var um tíma í hers höndum. Núna er eigandinn fundinn og er það enginn annar en okkar maður í útlöndum, Sölvi Steinn.

,,Það var svo gott veður eitthvað og ég nýbúinn að hlaupa 15 km. Svitinn glampaði alveg í sólinni og ég bara varð að smella einni af… Ég bý einn skiljiði og þar með getur verið svoldið erfitt að taka góðar myndir af mér. Svo einn daginn sá ég svona dróna á rosalega góðu verði og ég bara keypti hann. Þetta er selfie dróninn minn, ég var barað taka selfie.’’ segir sölvi og hlær.

Hann gerði yfirvöldum vart um þegar hann frétti af ástandinu frá vini sínum. ,,Ég sagði bara hey guys! I´m sorry, It´s just my selfie drone guys.. im really sorry.’’

Miðillinn bíður fregna af því hvort stjórnvöld í Finnlandi fyrirgefi okkar manni.