Ungi frumkvöðlahópurinn hefur í samstarfi við Nýsköpunarhraðal K100 fengið til liðs við sig fyrrverandi umsjónarmann Geysissvæðisins og hefur lært af honum aldagamlar aðferðir til að rífa náttúruna á lappir.
Að sögn hópsins var það að hella sápu í Geysi á sínum tíma bráðsniðug leið til að fá hann til að gjósa eftir hentisemi. Ungu frumkvöðlarnir telja að AMOC, veltihringrás Atlantshafsins, gæti haft gott af svipuðum aðferðum. Þeir leggja því senn af stað í leiðangur í átt að þungamiðju veltihringrásarinnar í Atlantshafi með 4.000 lítra af Palmolive handsápu meðferðis.
AMOC er kerfi hafstrauma sem flytja m.a. hlýjan sjó norður á bóginn og gera Ísland byggilegt. Vísbendingar eru uppi um að veltihringrásin gæti riðað að falli vegna loftslagsbreytinga og þar með gert búsetuskilyrði á Íslandi illbærileg.
Talsmaður hópsins, Gylfi G. Ansnes, er skiljanlega ánægður með stöðu verkefnisins. „Fjármögnunin hefur farið afar vel af stað, jafnvirði um 10 þúsund amerískra dollara hefur safnast í rafmyntinni ANU$CO¥N og álíka mikið eða meira í formi gjafasápu.“ Væntir hann þess því að ekkert sé því til fyrirstöðu að leggja úr höfn innan nokkurra mánaða.
