Við brunavarnaúttekt á kjallara Ráðhúss Reykjavíkur í gær uppgötvaði Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins göng sem virðast að minnsta kosti fjörutíu ára gömul. Hópur sérþjálfaðra sigmanna er sem stendur að kanna göngin en þau virðast liggja í austurátt og koma upp nokkrum kílómetrum lengra í þá áttina, innan borgarmarkanna.

Getgátur eru um að búið sé að finna göng sem talið er að hafi verið grafin í borgarstjóratíð Davíðs Oddsonar og liggi í beinni línu frá Ráðhúsinu að sjónvarpshúsinu í Efstaleiti.

Aðspurður segir Hléberg Grettisson, aðalvarðstjóri að allt útlit sé fyrir að göngin hafi verið notuð reglulega undanfarin árin og allra síðast fyrir einungis nokkrum dögum.

Það hefur greinilega verið svolítil umferð um þessi göng, við sjáum það glögglega á ummerkjum. Og greinilegt að umferðin er í báðar áttir. Hún virðist samt svolítið stopul og engu líkara en það líði sirka fjögur ár á milli mannaferða. En þetta er auðvitað ekki löglegt mannvirki og það verður sennilega lokað fyrir þau nema einhverskonar samþykktir liggi fyrir.

Fréttastofa Miðilsins heldur áfram að fylgjast með framvindu þessa máls.