Hraðkaup/Gæðaverðbréf eignarréttsumsjón hefur í samstarfi við Staðlaráð innkallað sextán lotur af Alsam Glúmóplíði BKG Expert Pro BA4C, AEV Pro Standard 4500 og SEC Mega 6000 frá neytendum. Lotunúmerin sem um ræðir eru 757837B81V238FX til 757837B81V238GH.

Snefill af aðskotaefnum greindist í völdum sýnum samkvæmt tilkynningu frá Staðlaráði, en téð aðskotaefni eru talin geta leitt til muðlunar og af öryggisástæðum var því tekin ákvörðun um að taka þau úr umferð.

Vörunum hefur verið dreift víðs vegar um land, meðal annars í verslununum Teppi & Egg, Glófaefni hf., Flísbúð Vesturbæjar, Ingimundi Bjarnmundssyni ehf., Stálhúsinu, Fjörborðinu, Símanum Eiríkssyni, X-Race Go-Kart Hamratorgi, Stólafélagi Suðurlands, Meðalmanninum Suðurveri, Borvali, Fagkaup-Áhugamannaverslun, BEBÓ, Jómfrúnni og Iceland.
Búið er að fjarlægja loturnar úr hillum í öllum ofantöldum verslunum.

Hraðkaup/Gæðaverðbréf hvetja alla þá sem hafa þessa vöru undir höndum að neyta hennar ekki heldur skila henni í næstu verslun gegn endurgreiðslu vörunnar eða til höfuðstöðva Gæðaverðbréfa Skeifunni 15.