„Það er nú alveg hægt að bera rök fyrir því að þetta sé sviðslistaverk, þeir eru allir eitthvað að syngja og dansa þessir drengir, oftar en ekki á sviði”. Þetta segir Erling Jóhannesson, formaður sviðslistamiðstöðvar í samtali við miðilinn en ákvörðun hennar um að verðlauna eitt kvikmyndaverkefni í 15 af þeim 16 liðum sem verðlaun eru gefin fyrir hefur heldur betur farið misvel í lýðinn.

„Staðan er einfaldlega sú að samfélagið er að breytast og það mjög hratt. Við erum bara að reynað halda í við þær breytingar og ætlum okkur að vera skrefi á undan. Menningarætum komandi kynslóða er drullusama um einhvern grískan harmleik og nýjar útsetningar á Shakespeare. Þau vilja bara sæta, tanaða gaura og sætar, tanaðar gellur. Við getum ekki farið gegn því sem er hvað vinsælast í dag”

Tónhylur Akademía kom svo sannarlega einsog stormsveipur inn svið íslenskra menninga og lista þetta kvöldið en aldrei áður hefur ein framleiðasla hlotið jafn mörg verðlaun á einu bretti. „Þetter bara geggjað, bara ógeðslega kúl sko. Ég er alveg shocked sko, vá! Bara fokking töff skiluru” sagði Maron Birnir en hann hneppti sjálfur fjórar viðurkenningar í kvöld.

Eini flokkurinn sem Tónhylur hlaut ekki verðlaun fyrir var leikkona í aðalhlutverki enda engin kona í aðalhlutverki.

Vivian Ólafsdóttir hlaut þó verðlaun sem leikkona í aukahlutverki fyrir flutning sinn á persónunni X.

Sýning ársins: Undir Ísnum, Tónhylur Akademía

Undir Ísnum naut gífurlegra vinsælda en kröftugar raddir kalla eftir því að verkefnið verði sett upp á stórasviði þjóðleikhúsins á næsta leikári.
Undir Ísnum naut gífurlegra vinsælda en kröftugar raddir kalla eftir því að verkefnið verði sett upp á stórasviði þjóðleikhúsins á næsta leikári.

Barnasýning ársins: Undir Ísnum, Tónhylur Akademía

Strákarnir eru vinsælir meðal barna enda ungir í anda
Strákarnir eru vinsælir meðal barna enda ungir í anda

Leikrit ársins: Undir Ísnum, Tónhylur Akademía

Grimt hefur verið tekist á um það hvort Undir Ísnum eigi í raun eitthvað erindi á Grímuverðlaununum en aðdáendur Tónhylar Akademíu segja leikritið í kringum myndina vera raunverulega meistarstykkið.
Grimt hefur verið tekist á um það hvort Undir Ísnum eigi í raun eitthvað erindi á Grímuverðlaununum en aðdáendur Tónhylar Akademíu segja leikritið í kringum myndina vera raunverulega meistarstykkið.

Leikstjóri ársins: Kristján Sturla Bjarnason, Undir Ísnum

Kristján Sturla er eflaust sáttur með strákana sína eftir kvöldið. Og jú örugglega líka hana Vivian.
Kristján Sturla er eflaust sáttur með strákana sína eftir kvöldið. Og jú örugglega líka hana Vivian.

Danshöfundur ársins: Maron Birnir, Undir Ísnum

Maron Birnir kann svo sannarlega að hrissta á sér bossann!
Maron Birnir kann svo sannarlega að hrissta á sér bossann!

Leikmynd ársins: Gaurinn sem gerði leikmyndina fyrir Undir Ísnum

Margur er knár, þótt hann sé smár en gaurinn sem gerði leikmyndina er víst alveg sérstaklega smár, 147 cm.
Margur er knár, þótt hann sé smár en gaurinn sem gerði leikmyndina er víst alveg sérstaklega smár, 147 cm.

Búningar ársins: Spútnik og Húrra Reykjavík, Undir Ísnum

Passa sig að drukkna ekki í þessi drippi.
Passa sig að drukkna ekki í þessi drippi.

Lýsing ársins: Maggi Pera, Undir Ísnum

Magnús „Pera“ Sjafnarson er einn mest spennandi ljósahönnuður landsins. Fylgið ljósinu, fylgist með perunni!
Magnús „Pera“ Sjafnarson er einn mest spennandi ljósahönnuður landsins. Fylgið ljósinu, fylgist með perunni!

Tónlist og hljóðmynd ársins: Kristján Sturla Bjarnason, Undir Ísnum

Kristján Sturla raðaði inn verðlaunum þetta kvöldið.
Kristján Sturla raðaði inn verðlaunum þetta kvöldið.

Dans- og sviðshreyfingar ársins: Maron Birnir, Undir Ísnum

Kominn tími til að hrista á sér bossann beibí!
Kominn tími til að hrista á sér bossann beibí!

Leikkona í aðalhlutverki: Nína Dögg Filippusdóttir, Óresteia

Nína Dögg var alveg frábær í Óresteiu.
Nína Dögg var alveg frábær í Óresteiu.

Leikkona í aukahlutverki: Vivian Ólafsdóttir, Undir Ísnum

Vivian Ólafsdóttir sem hið glæsilega illkvendi, X.....
Vivian Ólafsdóttir sem hið glæsilega illkvendi, X.....

Leikari í aðalhlutverki: Helgi T, Undir Ísnum

Helgi T er af mörgum talinn einn efnilegasti leikari landsins, og af sumum sá sætasti ;)
Helgi T er af mörgum talinn einn efnilegasti leikari landsins, og af sumum sá sætasti ;)

Leikari í aukahlutverki: Lindi Banushi, Undir Ísnum

Hvað er hægt að segja annað um hann Lindi Banushi nema að hann er ein mest sexý týpa landsins.
Hvað er hægt að segja annað um hann Lindi Banushi nema að hann er ein mest sexý týpa landsins.

Söngvari ársins: Maron Birnir, Undir Ísnum

Maronið með þrennu í kvöld, hann er alveg á eldi þessi drengur!
Maronið með þrennu í kvöld, hann er alveg á eldi þessi drengur!

Dansari ársins: Maron Birnir, Undir Ísnum

Ertu ekki að djóka! fjögur verðlaun þetta hlýtur að vera met....
Ertu ekki að djóka! fjögur verðlaun þetta hlýtur að vera met....

Einnig voru fimm hvatningarverðlaun veitt í kvöld en Auðun Blöndal hlaut þau öll, enda er hann fokking meistari að sögn þeirra sem sitja nefndina.

Það þarf að hvetja kónginn áfram! Annars hættir hann þessu bara
Það þarf að hvetja kónginn áfram! Annars hættir hann þessu bara