Nú á dögunum lauk tveggja ára rannsókn þverfaglegs hóps fræðimanna við Árnastofnun á frumhandritum Landnámu. Rannsókn snéri að lifnaðarháttum og frumgerð landnemasamfélags Íslendinga við upphaf byggðar. Niðurstöðurnar voru margvíslegar en mest eftirvænting er fyrir því sem nú er talið vera
„Elsta trikkið í bókinni“.

Það er ýmislegt fróðlegt sem kom fram í þessum rannsóknum sem gerð verða frekar skil á næstu vikum en þetta er nú sennilega það sem fræðasamfélagið er hvað spenntast fyrir.

Segir Ásta Margrét Sólnes sem fór fyrir hópnum.