Greint var frá því í dag að Halla yrði ekki lengur aðalmaður í umhverfis- og samgöngunefnd og því orðin eini þingmaður flokksins sem ekki hefði aðalmannssæti í nefndum. Héðan í frá mun Halla ekki sinna neinum almennum þingstörfum og leggja allt sitt í almannatengsl flokksins.
Miðillinn hafði samband við Höllu til að spyrja hana frekar út í þá þjónustu sem almenningur mætti búast við af henni í nýju starfi en hún hafði þetta að segja.
„Hæ, ég er Halla Hrund. Ég er svokallað snjallmenni, sem er í raun stafrænn ráðgjafi. Ég elska að vinna og ekkert gleður mig meira en að aðstoða fólk!“

Miðillinn reyndi endurtekið að komast að meiru um störf Höllu án afgerandi árangurs. Halla sagði það sama aftur og aftur. „Ég svara á íslensku eða ensku og reyni alltaf að vísa í réttar og uppfærðar upplýsingar þegar þarf. Þú ert nú á síðunni um spjallmennið hjá Framsóknarflokknum, þannig ef þú vilt get ég líka hjálpað þér að útskýra skilmála eða hvernig ég vinn.“
Að lokum ákvað Miðillinn að spyrja hana út í búnaðarþingsmálið svokallaða, er Sigurður Ingi vísaði til Vigdísar Häsler, formanns Bændasamtaka, sem „hinnar svörtu“ á gleðskap í tengslum við búnaðarþing árið 2022. Halla hafði þetta um málið að segja. „Úpps, eitthvað fór úrskeiðis.. vinsamlegast reyndu aftur síðar.“