Lögreglan í Viðey brást snöggt við eftir að íbúar eyjunnar tilkynntu þrumugný sem minnti helst á skothvell.

Hinn grunaði, maður á þrítugsaldri, var gómaður skammt frá súlunni með haglabyssu hangandi utan á sér. Þegar lögregla kom að honum sat hann við lestur á bókinni Catcher in the Rye eftir J.D. Salinger.

Heimildir miðilsins herma að súlan sé ónýt og ekki verði kveikt á henni aftur. Við hjá miðlinum sendum Yoko Ono og öðrum aðstandendum súlunnar samhúðarkveðjur á þessum átakanlegu tímum.