Flestir íslenskir myndlistar unnendur kannast eflaust við Hildigunni Birgisdóttur en hún tók þátt í Feneyjar tvíæringnum fyrir hönd Íslands árið 2024. Nú segist hún vera komin með nóg af hösslinu og baslinu sem fylgir myndlistinni og ætlar að nýta hæfileikana í eitthvað arðbærara.


,,Kæru ættingjar og vinir. Að lokinni enn annarri drjúgrar vertíð í listaheiminum og ekki bót fyrir rass, hef ég ákveðið að segja skilið við menningu og listir. Nú er kominn til að sækja seðilinn heim, maka krókinn, sjúga spenann og Jónína Bena bankabókina… Nú eftir áramót munum við fjölskyldan flytjast til kóngsins Köben þar sem ég tek við störfum yfirhönnuðar dönsku leikfangaverzlanarinnar @Kids_CoolshopDK 🚀🚀🚀. Ég þakka stjórnendum fyrirtækisins innilega fyrir það traust sem þau bera í garð til mín og hlakka til að vinna með þeim næstu misseri. 📈📈📈 Hej hej med dig! Lets make some monní penge 👍’’

Við hjá Miðlinum óskum Hildigunni og fjölskyldu farsældar í nýjum ævintýrum.