Hæ hæ elskurnar mínar, Baba Vanga heiti ég og ætlað peppa upp djammarana næstu misseri en ég verð með fastan lið á hverjum föstudegi hér á miðlinum! Smá um mig, ég fæddist árið 1911 í fyrrum Tyrkjaveldi en er sjálf Búlgörsk. Ég hef alltaf haft gott auga fyrir framtíðinni og þótt gaman að deila því sem ég sé með öðrum. Hlakka til að djamma með ykkur!

Spádómur helgarinnar hljóðar svo;

Hægri Sveifla á Kramber, vinstri sveifla á 12 tónum og ósköp venjuleg gamaldags sveifla á Kringlukránni.

Nettustu dyraverðirnir verða á Kalda bar og ungum efnilegum fjárfesta verður cancellað á Röntgen.

Fyrir þá sem eru að hugsa um að taka sunnudaginn á Mónakó þá er það í lagi þetta skiptið.

Vinnustaðar grínari úr Grafarvoginum verður fyrir vonbrigðum eftir að hafa keypt miða á Jon Raskin í Mengi og kemst að því að það er enginn Jón Rasskinn að spila þar.

Ekki vera neitt að eðla ykkur í kvöld, það er ekkert varið í það þessa helgina.

Spái Bubba góðri veiði.

Það sem er ritað mun verða, það sem er falið mun koma í ljós.