Á hátíðinni sýna fulltrúar frá fleiri en þremur löndum það besta sem þeir hafa upp á að bjóða í myndlist. Hart verður barist um verðlaunagripinn fræga, Færeyjatvíeyringinn, en einnig mun sigurvegari hátíðarinnar fá pakkaferð fyrir einn til Tenerife í tvær vikur.

Íslenski fulltrúinn verður valinn í nýjum raunveruleikaþáttum í anda bandarísku þáttanna America’s got Talent. Þættirnir heita „Ísland got listrænir hæfileikar“ og munu prufur í þættina hefjast í haust. Í dómnefnd sitja listmálararnir Erró, Tolli og Jói Fel.