Í borg óttans er tekist hart á um þessar mundir og fáir virðast sáttir með stöðuna eins og hún er. Frambjóðendur stjórnarandsöðu lofa að gera hlutina öðruvísi en þeir sem sitja við stjórnvölinn segjast ætlað gera betur. Það er fátt sem frambjóðendur þora ekki að lofa kjósendum að bæta en þó er sumt sem enginn virðist einusinni þora að minnast á.

Eitt af því sem pirrar Reykvíkinga eflaust hvað mest er það að geta ekki farið á listasafnið sitt án þess að þar hangi eitthvað prump á veggnum eftir Erró. Í hvert einasta sinn sem ný sýning opnar þá þarf alltaf að tala eitthvað um Erró þetta Erró hitt, það eru allir orðnir rosalega þreyttir á þessu og enginn að kaupa það að hann eigi að vera sá merkilegasti allra tíma.

Fretfákurinn á fullu flugi
Fretfákurinn á fullu flugi

En afhverju er þetta svona? Og afhverju hefur þetta fengið að vera svona nær frá því að safnið opnaði árið 2000? Svarið er einfalt, Davíð Oddsson. Davíð var borgarstjóri þegar að safnið var opnað og þáði hann þau 2000 verk sem Erró gaf safninu og gerði í leiðinni einhvern ömurlegan samning um að hann yrði alltaf til sýnis.

Davíð Oddson er þrátt fyrir að vera látinn enn þann dag í dag einn valda mesti maður íslands og hendur hans toga enn í taumana handan grafarinnar. Enginn sem ætlar sér að verða einhver á Íslandi á efni á því ráðskast með myrkraöfl íslands hvað þá myrkrahöfðingjan sjálfan.

Hér væri hægt að setja upp flotta sýningu á einhverri flottri myndlist
Hér væri hægt að setja upp flotta sýningu á einhverri flottri myndlist

Blaðamaður Miðilsins.com er að fara á kjörstað eftir klukkutíma og ég lofa að kjósa hvern þann sem sparkar Erró úr listasafni Reykjavíkur. Sendið formlegt kosningaloforð á midill@midillinn.com