NUGÍS – Nefnd um gæði íslenskra sveitarfélaga birti niðurstöður könnunar um gæði sveitarfélaga á Íslandi á dögunum. Nefndin er skipuð átta fulltrúum og byggir á heildstæðu faglegu mati þar sem horft er til þátta á borð við veðurfar, landfræðilega legu, samfélagsgerð og almenna ásýnd.
Á meðan Mosfellsbær hlaut hæstu einkunn og var valið besta sveitarfélag Íslands fékk Langanesbyggð verstu einkunn í fjölda flokka, þ.m.t. fyrir veðurfar og þjónustustig.
Í samtali við Miðilinn segir nýkjörinn sveitastjóri Langanesbyggðar, Jón Hrói Finnsson, að niðurstöðurnar séu mikil vonbrigði fyrir íbúa sveitarfélagsins en þær komi honum samt ekki sérstaklega á óvart.
„Síðan ég tók við sveitarstjórastarfinu, og í raun áður en ég tók við því, hef ég ítrekað bent á hversu illa viðrar hérna og hversu langt er í allt. Fólk hlustar bara ekkert á mig.“

Önnur sveitarfélög sem veittu Langanesbyggð harða samkeppni um neðsta sætið voru Grýtubakkahreppur, Tjörneshreppur og Árneshreppur. En Árneshreppur fékk lægstu einkunn er varðaði samfélagsgerð, en aðeins 60 manns eru skráðir íbúar þar.