Mikil óvissa hefur verið um framtíð verkenfsins í kjölfar brotthvarfs meirihlutans í borginni en fregnir herma að oddvitar Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins hafi talað sig niður á mun einfaldari útgáfu Borgarlínuverkefnsins.

Línan mun ganga frá Skólavörðuholti niður á Lækjartorg. Aðspurð um málið segja oddvitar flokkana að þessi lausn sé mun meira í anda þess einstaklingsfrelsis sem flokkarnir kenna sig við.

Framkvæmdir munu hefjast á morgun og standa fram á fimmtudag sem er talsvert á undan áætlun upprunalegu Borgarlínunnar.