Mikil umræða erlendis hefur verið um að myndlistarfólk og aðrir sem starfa í skapandi greinum hafi tekið við hlutverki íþróttafólks í hugum og hjörtum almennings. Fatamerkið New Originals nýtur mikillar hylli nú um mundir en fatnaður þeirra með áletruninni “Creative are the new athletes“ er fáanlegur í tískuverslunum víða.

Við hjá miðlinum höfum að þessu tilefni lagt drög að herferð þar sem fólki gefst kostur á að klæðast treyjum merktum sínu uppáhalds myndlistarfólki. Treyjurnar eru einskonar landsliðsbúningur íslenska myndlistarlandsliðsins og er hver treyja innblásin af persónulegum stíl og verkum úrvals myndlistarfólks.




Treyjurnar eru ekki til sölu sem stendur.