Pitsan sem um ræðir er Iceland Stuffed Crust Double Pepperoni Pizza, pitsa með tvöföldum skammti af pepperóní og ostafylltri skorpu.

Þær eru framleiddar af Iceland sem hlaut m.a. verðlaunin fyrir besta smásöluaðila frosinna pítsa á Papa Industry verðlaununum 2024.

Paul Dhaliwal framkvæmdastjóri markaðssviðs Iceland sagði verðlaunin á sínum tíma mikinn heiður í samtali við Retail Times. „Að hreppa mörg verðlaun á Quality Food Awards og að vera heiðruð af Papa á sama kvöldi er til marks um áhersluna sem við leggjum á gæði og þróun í okkar framleiðslu.“

Iceland hlaut einmitt þrenn gullverðlaun á umræddum Quality Food Awards, fyrir Iceland Luxury Aberdeen Angus XL Cheeseburgers, Iceland 2 Pack Ridiculously Crispy Plate Sized Hash Browns og Iceland Hot and Spicy Chicken Ribs.

Pitsan sem um ræðir.
Pitsan sem um ræðir.