„Þetta er alveg hryllilega hressandi, með áherslu á hryllinginn” segir Kristbogi James Thornton, fangi á Litla-Hrauni. Hann lýsir Kurani sem stórbrottnum karakter, oftast frekar sjarmerandi en á köflum frekar óútreiknanlegur. ,,Hann er pínu Rasputin týpa, hann Skipar mönnum inní kofa með sínum skerandi bláu augum og ef menn hlýða ekki þá er voðinn vís. Hann er alveg svakalega dóminerandi persóna, maður vill helst ekki fara gegn honum í neinu.

Kurani fer sínar eginn leiðir í saunagusustjórnun. „Hann er að þróa sína eigin hugmyndafræði, við strákarnir vitum ekki alveg hvað okkur á að finnast um þetta. Hann Múmmi er ekkert mikið fyrir að tala. Þegar við erum sestir inn starir hann yfirleitt bara á okkur með þessu rosalega augnaráði sínu. Það er auðvelt að glata sjálfum sér í augunum hans… Einu skiptin sem maður heyrir eitthvað frá honum er þeggar hann byrjar að sveifla handklæðinu, þá gólar hann alveg einsog vitleysingi. Stundum, þegar hann er í gír, þá pissar hann á handklæðið og skvettir svo þvagi yfir alla”.