Nýmyndaður borgarstjórnar meirihluti hyggst ráðast í stórtækar aðgerðir í skipulagsmálum á kjörtímabilinu. Hildur Björnsdóttir, nýkjörinn borgarstjóri réðst strax til atlögu eftir lendingu úr Viðey og hjó tvö embætti dauð þar í fjörunni. Ætlunin er að sameina þau í eitt skilvirkt og arðbært apparat með aðstoð einkageirans.

Umrædd embætti eru Kirkjugarðar Reykjavíkur og Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn. Miðillinn hafði samband við Hildi og hafði hún þetta um málið að segja. „Það er nú einfaldlega bara svoleiðis að það eru allt of margir garðar sem enginn nennir í. Við sjáum gífurlega möguleika á því að hægt verði að reka þessi tvö batterí betur. Með því að sameina þau á opnum markaði sjáum við fram á að geta boðið betri þjónustu fyrir minni pening. Langtíma markmiðið er svo að sjálfsögðu að opna einn sameiginlegan Fjölskyldu-, húsdýra- og kirkjugarð. Framtíðar borgarbúar munu því geta farið í fallturn, klappað kiðlingum og heimsótt hina dauðu, allt á einum stað fyrir sanngjarnan aðgangseyri“.