Ekki hefur enn verið gefið upp þvermál hattar JJ Julius Son á tónlistarhátíðinni Þvermál sem haldin verður á Þingvöllum á sólstöðum 20. júní næstkomandi. Þær upplýsingar munu skipta sköpum því allir sem ætla sér að mæta með barðastærri hatt en JJ þurfa að halda sig á mottunni.
Eitt er þó víst að það verður ekkert barnaskólabarð á hatti tónlistarmannsins en hann hefur löngum spókað sig með glæsilega og íburðarmikla hatta. Og yfirleitt er axlarsláin ekki langt undan. Bósar með hefðbundinn tíu gallona Stetson geta því andað léttar.
Vísindamenn hafa varað við mögulegum deildarmyrkva á sólu vegna hattbarðs JJ, en viðvörunin hefur vakið athygli langt út fyrir landsteinana og er von á miklum fjölda til landsins vegna myrkvans. Gistipláss á landinu sé að miklu leyti uppbókað vegna hans og margir hverjir hugsa sér gott til glóðarinnar og slá þrjár flugur í fjórum höggum með því að bera augum myrkvann og stórstjörnuna frá Mosfellsbæ samtímis.
Viðbúnaðarstig Íslenska sólarrannsóknarfélagsins hefur verið hækkað í fjólublátt og óvissustig Almannagjárvarna í milda ákvörðunarlömun vegna myrkvans.
