Fúlskeggjaðir áhugamenn þess að sitja að sumbli þurfa eigi að örvænta! Ölstofa allra landsmanna, sú sem hefur verið til húsa á Vegamótastíg síðustu 24 árin, hefur auðveldað þeim lífið og bætt við aukadælu á barinn. Úr henni streymir skeggolía í neysluskömmtum beint af kúnni. Vitaskuld varð fyrir valinu olían Fjallabaksleið Nordic Angan úr eigin línu Kormáks Geirharðssonar og Skjaldar Sigurjónssonar, sem Ölstofan er kennd við.

Nýjungin er liður í aðgerðum knæpunnar gegn því að bargestir þurfi nokkurn tímann að yfirgefa stofnunina. Einhverjir kúnnar höfðu kvartað sáran yfir skorti á slíkri þjónustu innanhúss og oft á tíðum þurft að leggja leið sína heim til að bjarga málunum fyrir horn, sem gat í sumum tilfellum verið töluverð vegalengd. Jafnvel í hinum enda Þingholtanna.

Aðrir liðir í aðgerðunum eru til að mynda vestaviðgerðir, sixpensarastraujun, pípulökkun, hattabarðaskipti og lánsspjaldtölvur fyrir börnin. Einnig verði settur upp glymskratti í líki hins knáa JJ Julius Son í Kaleo, sem leikur alla helstu smelli þessarar þjóðarstoltssveitar fyrir klink. Ölstofan vill leggja áherslu á alhliða þjónustu sem hentar hennar kúnnahóp og telur aðgerðirnar endurspegla það í hvívetna.

„Skeggolíuvin í eyðimörkinni,“ sagði Sigurlás Skaptfell, einn fastakúnna öldurhússins, í samtali við Miðilinn. „Oft er maður alveg að visna í smettinu þegar komið er á sjötta bjór, kannski enn langt í kvöldmat og þá engin ástæða til að vera að leggja leið sína heim bara rétt til að löðra sig í framan. Þetta er leikbreytir, algjör leikbreytir.“