Snemma í morgun birtist tilkynning á heimasíðu Reykjavíkurborg um að byggja ætti nýtt úrræði í Grafarvogi við hlið Stuðla. Úrræðið mun heita Höfuðstafir og þjónusta gamalmenni sem glíma við fíkni- og hegðunarvanda. Fátt annað en kostnaður framkvæmda á húsnæði þess kemur fram í tilkynningunni og ekkert hafði verið rætt um að ráðast ætti í þær á fyrri borgarstjórnarfundum. Blaðamaður miðilsins náði sambandi við þær Silju Sóley, formann Sósíalista, og Sönnu Magdalenu, formann Vinstrisins, en þær virtust báðar koma af fjöllum. Sanna sagðist vera ánægð með að ráðist yrði í aðgerðir í málaflokknum en furðaði sig þó á vinnubrögðunum.

Miðillinn reyndi ítrekað að ná í Ragnhildi Öldu, formann velferðarráðs, en hún svaraði ekki í símann fyrr en upp úr hádegi. Hún var augljóslega ekki farin á fætur ennþá og hljómaði pínu timbruð. Blaðamaður baðst afsökunar á að hafa vakið hana og spurði hana út í fyrirhugaðar framkvæmdir í Grafarvoginum.

„Já, shit, ég var næstum búin að gleyma þessu,“ segir hún flissandi. „Það var pínu hittingur hjá okkur í Sjálfstæðisflokknum núna í gærkvöldi heima hjá Brynjari, nóg af góðu víni og við urðum nokkur svolítið full. Ég varð náttúrulega nýlega formaður velferðarsviðs hjá borginni og Brynjar var eitthvað farinn að grínast í mér. Hann vildi að ég myndi græja úrræði fyrir svona gamlar fyllibyttur eins og hann. Fyrst við erum til í að gera svona mikið fyrir unga fólkið, hví þá ekki þau sem eru komin á aldur? Svo var klukkan örugglega eitthvað um fjögur þegar við lágum öll í sófanum alveg mökkuð á því. Við vorum búin að drekka svona, án djóks, fimmtán flöskur og smá sterkt með því þegar Brynjar sprettur á lappir, spýtir út úr sér veipinu og hrópar: „Ég er með þetta, við byggjum áfangaheimili fyrir aldraða hliðina á Stuðlum og köllum það Höfuðstafi!“ Við ætluðum öll svoleiðis að kafna úr hlátri. Bjarni Gauja bókstaflega ældi yfir sig úr hlátri, þetta var rosalegt! Hann Brynjar er náttúrulega bara skáld af guðs náð, þá sérstaklega þegar hann er búinn að fá sér neðan í því. Hann getur verið svo fokking fyndinn gaur.“

Blaðamaður hlær að þessu orðagríni með henni en spyr svo hvernig þetta hafi eiginlega ratað í fjárlög borgarstjórnar, úr einhverju einkahófi á heimili borgarfulltrúa.

„Já, shit maður, hann Brynjar var cookin’. Við lágum öll þarna killiflöt á stofugólfinu með þindina upp í koki en honum var bara fúlasta alvara. Hann fór rakleiðis í tölvuna og byrjaði að græja þetta. Einhverjir vildu stoppa hann en ég sagði bara: let him cook, sko. Hann er náttúrulega algjör refur og búinn að vera í stjórnmálum helvíti lengi, hann kann að fara einhverjar fjallabaksleiðir innan kerfisins og bara kviss, bamm, búm — búið og gert. Svo hló hann bara, opnaði nýja flösku og fór að gera dónöts á veipinu. Fokking legend! Svo er bara að sjá hvort það verði ekki eitthvað gott úr þessu. Ef ekki þá seljum við bara Simma og Jóa þetta, þeir gera eitthvað næs úr þessu.“