Síðastliðinn mánudag varð Sveinbjörn Arthúrsson, starfsmaður Utanríkisráðuneytisins, fyrir því óláni að skrá Ísland sem aðildarríki Evrópusambandsins. Sveinbjörn kennir óskýru notendaviðmóti umsóknarsíðu sambandsins um óhappið.
Ég hélt einfaldlega að ég væri að samþykkja vafrakökur á vefsíðu sambandsins en hef í staðinn samþykkt „skilmála” á gamalli umsókn inni í kerfinu. Segir Sveinbjörn.
Viðræður standa nú yfir við sambandið um að draga inngönguna til baka en ljóst er þó að Ísland þarf að minnsta kosti að greiða fyrsta mánuð gjalda sem fylgja aðildinni.
Utanríkisráðherra gaf ekki kost á viðtali en segist harma mistökin sem hún segir mjög óheppileg.
Miðillinn mun fylgjast náið með framvindu mála.