Starfsmenn miðilsins komu saman á Jómfrúnni í kvöld til að skála og fagna góðum móttökum. Í upphafi kvölds var Stefán hrókur alls fagnaðar enda stóð hann sig eins og hetja á kosningavakt miðilsins í nótt. Svo er leið á kvöldið var Stefán augljóslega orðinn mjög drukkinn og kominn púki í manninn. Hann var orðinn mjög hrokafullur, var stanslaust grípandi framm í fyrir öðrum, frussandi og slefandi. Þetta var allt eitthvað sem mætti fyrirgefa drukknum manni en þegar Stefán kom til baka af klósettinu með typpið standandi út um buxnaklaufina, hlammaði því á rækjubrauð sem einhver átti eftir að klára og sagði „hefuru séð svona litla rækju áður“ sem mælirinn fylltist. Stefán var rekinn á staðnum.

Miðillinn auglýsir því nú formlega eftir nýjum grafískum miðlara. Þeim sem hefur áhuga á starfinu er boðið að taka þátt í opinni samkeppni grafískrar miðlunnar miðilsins. Við biðjum um mynd sem sýnir erjur tveggja þjóðþekktra einstaklinga yfir einhverjum hlut sem finna mætti inn á baði. Framlög skal senda á midill@midillinn.com