Lögreglan á Suðurnesjum hefur í samstarfi við Europol flett ofan af glæpahóp grunuðum um innflutning á gríðarlegu magni íbúfens.

Þrír menn voru handteknir á Keflavíkurflugvelli síðastliðinn þriðjudag. Innflutningurinn er talinn tengjast óskipulagðri brotastarfsemi og teygir anga sína til minnst ellefu landa.

Í kjölfarið var ráðist í húsleit á heimilum mannanna og fundust í einu þeirra hátt í fjögur kílógrömm af hreinu paratabs og sjö lítrar af panódílbasa.

„Við lögðum upp með að lauma inn léttum 8k í þessum rúnti en lentum í þessum litla þrándi í götu, eins og ég segi, svona gengur ekki upp í hvert skipti en það sem skiptir máli er að maður lætur það ekki á sig fá,“ sagði Hóseas Hroðason smyglari í samtali við Miðilinn. „Maður þarf bara að passa að festa sig ekki í að horfa í baksýnisspegilinn, horfa fram á við og fókusera bara á næstu verkefni.“

Rumur Roðnes, fyrsti lautinant hjá Lögreglunni á Suðurnesjum, sagði árangurinn framar vonum: „Við krömdum þessi vesalings peð eins og pöddur, tókum þá og gerðum gjörsamlega út af við þá. Þeir hugsa sig vonandi tvisvar um áður en þeir voga sér að abbast upp á kóngana aftur.“

Frá talningarstað.
Frá talningarstað.

Talning á töflunum fór fram á nokkrum talningarstöðum í Reykjanes- og Suðurnesjabæ og var talið fram eftir nóttu í kjölfar haldlagningar efnanna. Talningarstjóri lögregluembættisins, Haraldur Hólm, sagði í samtali við Miðilinn allt hafa gengið vonum framar og að ríflega átta þúsund töflur hafi verið taldar og endurtaldar áður en að nýr dagur reis. „Á svona stundum sést styrkur liðsheildarinnar og samstöðunnar innan talningarhópsins. Maður fyllist stolti af svo samstilltum hóp sem sýnir trekk í trekk úr hverju hann er spunninn, og þá sérstaklega svona á ögurstundu.“ ■