Nú á dögunum var hulunni svipt af glæsilegum endurbótum á turninum fræga sem stendur í Húsdýra- og Fjölskyldugarðinum í Reykjavík. Viðgerðir hafa staðið yfir í nokkra mánuði en útliti turnsins er ætlað að endurspegla byggingarnar sem standa í hverfinu í kringum garðinn.

Auk endurbótanna á turninum sjálfum var einnig bætt við bílastæðakjallara sem eykur heildarfjölda stæða töluvert en mikill bílastæðaskortur hefur verið á svæðinu kringum hátíðadaga svo sem Pabbahelgar.
Gestir og íbúar turnsins hafa beðið með óþreyju eftir að framkvæmdum ljúki en aðspurður segja þeir breytingarnar mikla bragarbót.
Þetta er allt annað líf að vita af öruggu stæði þegar maður kemur þreyttur heim eftir langan dag í gröfunum
segir Atlas Breki, 5 ára
Framkvæmdum á svæðinu er þó ekki endanlega lokið því til stendur að fara í miklar vegaumbætur á gatnamótunum sem standa við turninn.

Þarna myndast oft mikil teppa þegar fólk er á leið í og úr kaffitíma og það er til háborinnar skammar að borgin hafi ekki gert neitt í þessu fyrr en nú
Segir Sunna Líf 4 ára sem starfar í námunda við turninn.
Samkvæmt samgöngusáttmála ríkis og sveitarfélaga munu þarna rísa mislæg gatnamót sem ættu að létta talsvert á umferð á svæðinu.