Í dag hefst heimsmeistaramótið í knattspyrnu og fótboltaunnendur eru svoleiðis að pissa í sig úr spennu. Undanfarnar vikur og mánuði hafa helstu sparkspekingar heimsins keppst við að spá fyrir um hvernig þetta muni allt saman fara. Hvaða þjóð mun valda mestum vonbrigðum og hver mun koma mest á óvart? Hvaða leikmaður mun sparka oftast í boltann og hver fær aldrei að koma inn á? Hverjir fara fyrstir heim og að sjálfsögðu, hvaða þjóð mun bera sigur úr býtum og enda á að lyfta gullknettinum?

Miðillinn hefur fengið sína þrjá vitrustu menn, þá Jógvan, Eyþór Inga og Frómarann sjálfan, til að spá í spilin og spilamennskuna í von um að komast að því hvernig þetta fer allt saman.

Einn af sigurvegurum heimsmeistaramótsins í Suður-Afríku árið 2010 var án efa vuvuzelan, en blásturshljóðfærið naut gífurlegra vinsælda meðal stuðningsmanna. Frómarinn spáir því að byssan muni gegna svipuðu hlutverki í ár, sérstaklega á þeim leikjum sem fara fram í Bandaríkjunum.

Byssur munu taka við keflinu af Vuvuzelainu þetta árið
Byssur munu taka við keflinu af Vuvuzelainu þetta árið

Eyþór er mikill Doritos-kall og segist sjálfur éta að minnsta kosti poka á dag af Cool American-brögðuðum dorra. Hann trúir ekki öðru en að snakkið muni nýta sér tækifærið og vera með geggjaða auglýsingaherferð á mótinu, enda heimamennirnir í Ameríku með langsvölasta liðið.

Eyþór Ingi og Dorri er rosalegt combo, Namm!
Eyþór Ingi og Dorri er rosalegt combo, Namm!

Official LGBTQ+ leikur mótsins fer fram í Seattle þann 27. júní. Þar munu Íranir og Egyptar kljást um knöttinn, en Jógvan Hansen spáir mikilli ást og kærleik á vellinum. Hann vonast til að frammistaða beggja liða bræði hjörtu stjórnvalda í heimalöndunum og breyti skoðun þeirra á hinseginleika.

Í báðum löndum ríkja forneskjuleg lög varðandi samkynhneigð og hinseginleika almennt, en í Íran fylgir því dauðarefsing að brjóta þau lög. Vitringarnir vonast til að þetta breytist, en þá hefur lengi dreymt um að fara í Egyptaland–Íran-túr, enda var Jesúsbarnið sjálft fætt einhvers staðar þarna.

Jógvan Hansen æðsti strumpur og Mojtaba Khamenei, æðsti klerkur eru engir skoðanabræður. Jógvan vonar að einn daginn geti þeir sæst og vitringarnir fengið að syngja fyrir hann.
Jógvan Hansen æðsti strumpur og Mojtaba Khamenei, æðsti klerkur eru engir skoðanabræður. Jógvan vonar að einn daginn geti þeir sæst og vitringarnir fengið að syngja fyrir hann.

Friðrik Ómar spáir Japönum góðu móti og segir þá spútnikliðið í ár. Hann telur að þeir komist að minnsta kosti í átta liða úrslit en segir 75% líkur á að þeir vinni mótið. Annars heldur hann alltaf fyrst og fremst með Færeyjum, fyrir vin sinn Jógvan.

Tvo eyríki sameinast í hjarta Friðriks Ómars
Tvo eyríki sameinast í hjarta Friðriks Ómars

Eyþór hins vegar virðist minna spenntur fyrir fótboltanum en aðrir. Það sem heillar hann við slík stórmót er stemningin, tónlistin og maturinn sem í boði er á leikjum. Mest hlakkar hann til að sjá rapparann Jelly Roll stíga á svið og auðvitað allar myndirnar af hamborgurum á Instagram. Ef það er eitthvað sem Kaninn kann, þá eru það hamborgarar! Ef hann yrði að halda með einhverjum, þá væri það Japan, til að losna við skammirnar frá Frómarnum.

Eyþór og ameríska hnossgætið!
Eyþór og ameríska hnossgætið!

Jógvan er spenntur að fylgjast með mótinu og sjá hverjir standa sig vel. Hann er ekki enn búinn að tileinka sér eitthvað eitt lið, þó þykir honum Japanir heillandi. Jógvan segist eiginlega bara halda með skipuleggjendum mótsins, hvað mest þessum Gianni Infantino.

„Ég finn rosalega til með honum, það eru allir endalaust að skammast í honum. Sama hvað einhverjum finnst um það sem úrskeiðis fer þá er hann bara manneskja, alveg eins og við öll. Gefum honum frið til að reyna að laga þetta.“

Jógvan og Infantino, sætir og saklausir.
Jógvan og Infantino, sætir og saklausir.