Úr rassinum kemur kúkur og prump, það er líffræðileg staðreynd. Vókið í dag ætlar að borða rass, en veit það ekki að ullabjakk kemur úr rass? Menning okkar tíma, á tímum hningnunar siðmenningar, sem er að gerast núna á okkar tímum, þar sem menningin og siðmenning og vestræn gildi eru undir áras frá rassætum, er gegnsýrð af þessum vók áróðri. Tökum sem dæmi lagið W.A.P. (íslenska: blaut rassapíka) eftir Cardi B. (Katrín Bé). Þar er sagt skýrum orðum: „If he eat my ass, he's a bottom feeder.“

„Ef hann borðar minn rass, er hann botnfóðrari“

Það er ekki oft sem maður sér þetta svona grímulaust. Hér er bókstaflega verið að hvetja til þess að borða rass, sem eins og áður segir, er uppruni alls kúks og prumps. Vókið getur ekki horfst í augu við þá staðreynd að kúkur og prump kemur úr rass, kúkur og prump eru ullabjakk, og enginn vill borða hvorki kúka né prump (því það ullabjakk). Þetta er einföld rökfræði. Aftur er hamrað á þessu í laginu EAT MY ASS eftir BIG WETT (Íslensku: borðaðu minn rass, eftir Stóru Blautu). Þar kemur kunnulegt vók leiðarstef aftur í ljós: „You know my boy’s no good / And he just won’t do / But he just got paid / And he eats ass too“

„Minn maður er ei öðlingur, það bara gengur ekki, en hann var að fá útborgað, og hann borðar rass líka.“

Hér má þó í það minnsta hrósa Stóru Blautu fyrir að benda réttilega á að konur eiga að vera með mönnum sem „get paid“ (fá peninga). En að borða rass? Nei takk, segi ég. Þar er bara kúkur og prump.

Höfundur er rassholuraunhyggjumaður